Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir umræðu um leiguverð á íbúðamarkaði á villigötum, þrátt fyrir að vera nokkuð hávær að undanförnu.
„Í þeirri umræðu hefur verið fullyrt að verðhækkanir á þessum markaði hafi verið úr öllu hófi og ekki í samræmi við almenna verðlagsþróun í landinu. Af þeirri ástæðu er rétt að staldra við og benda á nokkur einföld atriði,” skrifar Andrés á Vísi.
Fyrsta atriðið sem Andrés bendir á er að húsnæðiskostur er og hefur alltaf verið stærsti útgjaldaliður hverrar fjölskyldu. „Hvort sem fólk býr í eigin húsnæði eða er á leigumarkaði. Þannig hefur það ávallt verið og verður að öllum líkindum áfram.”
Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku hefur leiguverð ekki haldið í ýmsar stærðir síðastliðin ár, t.d. fasteignaverð og laun. Á föstu verðlagi hækkaði vísitala íbúðaverðs fyrir fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 22,4% frá desember 2019 til mars 2023 og launavísitalan hækkaði um 6,9%. Á sama tímabili hefur leiguverð lækkað um 4,8%.
Andrés færir þetta yfir á mannamál í grein sinni og segir þetta sýna að húsaleigan er hlutfallslega lág í samanburði við verð á fasteignum og fjármagnskostnað.
„Telja verður meiri líkur en minni á að húsaleigan aðlagist að einhverju leyti þegar horft er til þess að íbúafjölgun hér á landi hefur verið meiri undanfarna mánuði en nokkru sinni fyrr á svo skömmum tíma og framboð á leiguhúsnæði er augljóslega ekki í takt við þarfir markaðarins. Hér mun lögmálið um framboð og eftirspurn einfaldlega ráða þróuninni.“
„Hér gildir því hið sígilda“
Andrés vitnar jafnframt í könnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar máli sínu til stuðnings en niðurstöður hennar benda til þess að stærri hluti leigjenda sé ánægðari með stöðu sína en oft áður. „Enda liggur það fyrir að útgjöld vegna húsaleigu hafa verið svipað hlutfall ráðstöfunartekna allan undangenginn áratug.“
Til viðbótar bendir Andrés á lífskjarakönnun Hagstofu Íslands en samkvæmt henni töldu 13,8% heimila á leigumarkaði sig búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað árið 2022 í samanburði við 25,4% árið 2015. „Þessi niðurstaða bendir eindregið til þess að fólk hafi það almennt betra á leigumarkaði en oft áður.“
„Sú lýsing á ástandinu á leigumarkaði fyrir íbúðarhúsnæði sem birst hefur að undanförnu er því ekki í samræmi við þann raunveruleika sem opinber gögn segja til um. Hér gildir því hið sígilda að yfirveguð umræða, byggð á staðreyndum máls, er líklegust til að leiða umræðuna inn á réttar brautir,“ skrifar Andrés að lokum.