Hótel- og gisti­þjónusta í San Fransisco hrundi í far­aldrinum og eru hótel­eig­endur að drukkna í skuldum um þessar mundir sam­kvæmt The Wall Street Journal.

Van­skil á lánum með veði í at­vinnu­hús­næði í mið­bæ borgarinnar rauk upp í 41,6% í júní­mánuði sem er hækkun úr 5,7% í júní í fyrra.

Mun það vera mesta aukning milli mánaða meðal allra borga landsins.

Ferða­menn hafa ein­fald­lega ekki verið að sækja borgina heim í sama magni og áður en nýtingar­hlut­fall hótel­her­bergja um helgar hefur lækkað um 22% frá árinu 2019 í San Fransisco en 4% á lands­vísu.

„Fyrir hótel­geirann hefur þetta verið erfitt ár,“ segir Anna Mari­e Presutti, for­seti ferða­mála­stofnunar San Francisco.

Ráð­stefnum í borginni hefur einnig fækkað en tvö stærstu hótel borgarinnar, Hilton Parc 55 og Hilton San Francisco Union Square, hafa saman­lagt tapað milljarði dollara í verð­mæti, sam­kvæmt Kroll Bond Rating Agen­cy, sem metur þau nú á 553,8 milljónir dollara.