Bókin Seðlabankinn gegn Samherja eftir sagnfræðinginn Björn Jón Bragason kemur út í dag en í bókinni rekur Björn málarekstur Gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands gegn útgerðarfélaginu Samherja.
„Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands var sett á laggirnar eftir að gjaldeyrishöftunum var komið á. Eitt stærsta einstaka mál þess hófst með húsleit í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins á skrifstofum sjávarútvegsfélagsins Samherja. Félagið var sakað um alvarleg lögbrot sem forsvarsmenn þess báru af sér. Þessi atburður markaði upphaf að áralöngum átökum fyrir dómstólum og í fjölmiðlum,“ segir á baksíðu bókarinnar.
Bókin byggir að hluta til á bók Björns Jóns, Gjaldeyriseftirlitið – Vald án eftirlits, frá árinu 2016. „Síðan þá hefur margt mjög áhugavert komið í ljós sem gefur mun heildstæðari mynd af atburðarásinni og veitir áður óþekkta innsýn í hvað gekk á að tjaldabaki,“ segir á baksíðunni.
Bókin fjallar um alvarlega bresti og skort á fagmennsku í opinberri stjórnsýslu.
Spurt er hvort einhver beri ábyrgð sem höndlar með opinbert vald.
Tryggvi Gunnarsson, þáverandi umboðsmaður Alþingis, benti þingmönnum á vegna þessa máls að „refsiheimildir eru ekki tilraunastarfsemi. Þetta er mikið inngrip í líf fólks.“
Hann sagði einnig vegna þessa: „Við getum ekki haldið áfram að böðlast á borgurunum af því að stoltið er svo mikið. Stoltið má ekki bera menn ofurliði.“
Bókin er sögð koma lesendum mjög á óvart enda í senn spennandi og ógnvekjandi lesning.