Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,93% á milli mars og apríl hefur nú hækkað um 4,2% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan jókst um 0,4 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 3,8%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,93% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,2% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis jókst um 0,7 prósentustig milli mánaða en hún mældist 2,5% í mars.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að verð á mat og drykkjarvörum hafi hækkað um 0,8% milli mánaða og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,1%. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu einnig um 20,4%.

Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans höfðu báðar spáð því að verðbólgan myndi aukast úr 3,8%% í 4,0% í apríl. Bankarnir höfðu báðir spáð því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,8% milli mánaða.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 21. maí næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur, úr 8,0% í 7,75% við síðustu vaxtaákvörðun þann 19. mars síðastliðinn.