Vodafone hefur tengst DE-CIX en hún er stærsta skiptistöð netumferðar í Evrópu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að nýja tenging við DE-CIX í Frankfurt muni efla netgæði og flutningshraða til muna.

Siggeir Örn Steinþórsson, forstöðumaður vörustýringar og viðskiptavinaupplifunar hjá Vodafone, segir öflugar nettengingar til og frá landinu vera lykilþáttur í starfsemi vaxandi iðnaðar á Íslandi.

„Með þessu erum við að efla þjónustuna við leikjaspilara ásamt því að bjóða enn fjölbreyttara leiðarval á Internetinu fyrir þá sem vilja hámarka nethraða, svartíma og gæði,“ segir Siggeir.

Vodafone segir að leikjaspilarar ættu til að mynda að finna mikinn mun á svartíma til og frá landinu með þessari nýju tengingu.

Fyrirtækið er nú tengt við fimm skiptistöðvar fyrir netumferð í Evrópu, þar af eru þrjár tengdar í gegnum Danice-sæstrenginn DE-CIX í Frankfurt, AMS-IX í Amsterdam og NetNod í Svíþjóð. Tenging við LINX í London er í gegnum Farice sæstrenginn og INEX á Írlandi í gegnum IRIS sæstrenginn.