Líkt og undanfarin ár var Steypustöðin stærsta fyrirtækið í rekstri steypustöðva hér á landi í fyrra sé horft til tekna. Tekjur félagsins námu 13,7 milljörðum króna árið 2023, samanborið við 12,8 milljarða árið 2022. Velta Steypustöðvarinnar var 43% hærri en velta næststærsta félagsins á steypustöðvamarkaði, BM Vallár. Hagnaður BM Vallár var aftur á móti 34% hærri en hjá Steypustöðinni og nam 963 milljónum en hagnaður Steypustöðvarinnar nam 720 milljónum.
Heildartekjur Steypustöðvarinnar voru tæplega helmingurinn af heildartekjum tíu stærstu fyrirtækjanna í geiranum.
Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, kveðst mjög ánægður með hvernig rekstur félagsins gekk á síðasta ári, ekki síst í ljósi þess hve krefjandi ytra starfsumhverfið var. „Viðskipavinir Steypustöðvarinnar eru eingöngu bygginga- og jarðvinnuverktakar og því hefur staðan á þeim markaði mikil áhrif á rekstur okkar. Staðan á þessum markaði er erfið nú um stundir vegna þeirrar vaxtastefnu sem er keyrð í dag. Atvinnugreinin er gífurlega mannafls- og tækjafrek og þessar miklu sveiflur sem eru í geiranum eru aldrei til góða.“
Nánar er fjallað um steypustöðvar í bók Frjálsrar verslunar, 500 stærstu, sem var að koma út. Hægt er að festa kaup á bókinni hér.