Tekjuhæsti forstjóri landsins og launahæsti Íslendingurinn á síðasta ári er Magnús Steinarr Norðdahl, sem lét af störfum sem forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail í október á síðast ári eftir að félagið var selt Aptos, félag í eigu Goldman Sachs. Mánaðartekjur hans námu 117,7 milljónum króna.
Við söluna voru gerðir upp þriggja milljarða kaupréttarsamningar við Magnús og aðra lykilstarfsmenn sem vænta má þess að skýri tekjur hans á árinu að nokkru leyti. Magnús var með tæpar 118 milljónir króna í launatekjur á mánuði í fyrra.
Næst tekjuhæsti forstjórinn er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, með tæplega 43 milljónir króna á mánuði. Í þriðja sæti á listanum er svo Brett Albert Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á Íslandi, með ríflega 24 milljónir króna á mánði.
Tæplega 60 forstjórar voru með yfir 4 milljónir í mánaðartekjur í fyrra. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæstu forstjórarnir:
- Magnús Steinarr Norðdahl, fv. forstj. LS Retail 117,7 milljónir króna.
- Árni Oddur Þórðarson, forstj. Marels 42,8 milljónir
- Brett Albert Vigelskas, frkvstj. Costco á Íslandi 24,3 milljónir
- Björn Hembre, forstjóri Arnarlax 23,9 milljónir
- Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstj. AtNorth 22,7 milljónir
- Hjalti Baldursson, frkvstj. Bókunar 21,8 milljónir
- Helgi Helgason, frkvstj. Verne Global á Íslandi 17,4 milljónir
- Jón Þorgrímur Stefánsson, forstj. NetApp 15,4 milljónir
- Kári Stefánsson, forstj. Ísl. erfðagr. 13,4 milljónir
- Margrét Björk Tryggvadóttir, forstjóri Nova 9,7 milljónir
Finna má Tekjublað Frjálsrar verslunar á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2021 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2020, sem greiddur var árið 2021. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.