Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, var handtekin á föstudaginn á skemmtistað í borginni. Þetta hefur hún staðfest við mbl.is.
Hrafnarnir telja að útskýringin sem hún gefur á handtökunni, að hún hafi verið of lengi á salerni skemmtistaðarins, sé mjög ótrúverðug.
Annað hvort er þingmaður að segja ósatt um tilefni handtökunnar eða fyllsta ástæða er til að óska eftir innri rannsókn innan lögreglunnar á handtökunni.
Af þessu tilefni rifjaðist upp fyrir hröfnunum atriði úr einhverjum bestu þáttum sem framleiddir hafa verið, Little Britain, þar sem þingmaður kallar fjölmiðla á fund sinn og kemur með heldur ótrúverðugar skýringar á uppákomunum sem hann „lendir í“.