Kia EV9 hefur verið valinn sigurvegari á Women's Worldwide Car of the Year í flokki sportjeppa. Alls voru 62 gerðir bíla sem kepptu um sigurinn í flokknum.

Dómnefnd skipuð 75 kvenkyns bílablaðamönnum frá 52 löndum í fimm heimsálfum lagðist í ítarlegt matsferli sem samanstóð af prufukeyrslu, ítarlegri greiningu og ströngum rannsóknum til að velja sigurvegara í fimm flokkum: sportjeppi, fjölskyldubíll, stór bíll, sérhannaður bíll, fjórhjóladrifinn bíll og pallbíll.

Kia EV9 þótti skara fram úr fyrir einstaka straumlínulögun, nýstárlega hönnunareiginleika, framúrskarandi tækni, tvíátta hleðslugetu og 800 volta leifturhleðslukerfi. Dómnefndin lagði einnig áherslu á hagkvæmt verð EV9 sem skákar öðrum bílum í sama flokki.

EV9 sameinar styrk SUV-bíls, framúrstefnulegt útlit rafbíls og framúrskarandi tækni, sem færir honum leiðtogastöðu í flokki SUV-bíla. EV9 er byggður á E-GMP undirvagninum (Electric Global Modular Platform) og tryggir sportleg afköst og yfir 541 km drægni á rafmagni samkvæmt WLTP-prófun. Leifturhröð 800 volta hleðslugeta gerir honum kleift að ná allt að 239 km drægni á aðeins 15 mínútum.

Viðurkenning Kia EV9 á WWCOTY-verðlaununum árið 2024 sýnir áherslu Kia á að búa til bíla sem höfða til fjölbreyttra sjónarmiða og óska. EV9, ásamt fjórum öðrum sigurvegurum í sínum flokkum, mun halda áfram í lokaumferð matferlisins til að ákvarða aðalsigurvegara verðlaunanna Women‘s Worldwide Car of the Year. Aðalsigurvegari WWCOTY-verðlaunanna verður tilkynntur 8. mars næstkomandi, á baráttudegi kvenna.