Korpubikarinn, í samvinnu við First Water, hófst í dag á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur eða þrír keppnishringir á þremur dögum.

Keppnin hófst í morgun og eru mótslok áætluð um klukkan 16:00 sunnudaginn 2. júní.

Í karlaflokki eru 66 keppendur en þar er lægsta forgjöfin +6 og hæsta forgjöfin 1,3. Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson eru á meðal keppenda en þeir hafa leikið á Challenge Tour á þessu tímabili, sem er í næstefsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Axel hefur titil að verja á þessu móti en hann er þrefaldur Íslandsmeistari í golfi. Haraldur Franklín hefur einnig sigrað á Íslandsmótinu í golfi. Logi Sigurðsson, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er á meðal keppenda og Kristján Þór Einarsson, sem sigrað hefur tvívegis á Íslandsmótinu tekur einnig þátt.

Í kvennaflokki eru atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir á meðal keppenda. Þær hafa báðar leikið á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu ári, sem er í næstefsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Ragnhildur er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi en Guðrún Brá hefur þrívegis fagnað þeim titli. Meðalforgjöfin í kvennaflokki er 0,2 en alls eru 21 leikmaður í kvennaflokki. Meðalaldurinn er 21 ár, þrír keppendur eru 15 ára og elsti leikmaðurinn er 32 ára.

Keppendur eru alls 87 og koma þeir frá 11 klúbbum víðs vegar af landinu. GR er þá með flesta eða 29 alls, GKG og GM eru báðir með 12 keppendur og GK er með 10. Sjö klúbbar eru með keppendur í kvenna- og karlaflokki.