Ísabella Sara Tryggvadóttir er 16 ára og uppalin í Vesturbænum. Hún gekk í raðir Íslandsmeistara Vals í ár, en spilaði áður með uppeldisfélaginu sínu KR. Samningurinn hennar gildir út tímabilið 2027. Samhliða fótboltanum stundar Ísabella nám í Menntaskólanum í Reykjavík.

Hún hefur verið að gera góða hluti í sumar og komið við sögu í öllum leikjum Vals á tímabilinu. Þrátt fyrir að vera einungis 16 ára hefur hún spilað 53 leiki með meistaraflokki, þar af 23 í efstu deild.

Hver er fyrsta fótbolta minningin þín?

Ég hugsa svona það fyrsta sem mig dettur í hug var þegar ég mætti á fyrstu fótboltaæfinguna mína. Þá var ég á yngra ári í 5.flokki.

Ísabella Sara milli leikja á TM – mótinu í Vestmannaeyjum.
Ísabella Sara milli leikja á TM – mótinu í Vestmannaeyjum.

Ertu alinn upp við mikinn fótbolta?

Já mjög mikinn. Allir í fjölskyldunni minni hafa spilað fótbolta þannig það er yfirleitt alltaf verið að horfa á leiki heima. Svo þegar ég var yngri og ekki byrjuð að æfa var maður alltaf úti í fótbolta með fjölskyldunni.

Guðmundur Andri Tryggvason stóri bróðir minn spilar með karlaliði Vals og lék með öllum yngri landsliðunum, pabbi minn, Tryggvi Guðmundsson, á tæplega 250 meistaraflokksleiki í efstu deild og 42 A – landsliðsleiki. Mamma, Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir, lék 65 meistaraflokksleiki í KR og Breiðablik og sjö yngri landsleiki.

Hverjir eru styrkleikar þínir?

Myndi segja að ég væri teknísk, með góðan leikskilning og góður sóknar-varnarmaður.

Í hverju langar þig að bæta þig sem leikmaður og/eða einstaklingur?

Mig langar að bæta mig í ákvörðunartökum í sumum tilvikum og líklega bara klára færin betur.

Hvernig er rútínan þín á leikdegi?

Er ekki með svona fasta rútínu en reyni að borða góðan og hollan morgunmat og drekka mikið af vatni yfir daginn. Svo finnst mér gott að borða heita máltíð alveg nokkrum klukkutímum fyrir leik og bara eitthvað létt rétt fyrir mætingu.

Ef við eigum heimaleik fer ég alltaf inn í ræktina í Valsheimilinu, rúlla og tek smá liðkun en annars er það ekkert meira.

Hver er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur mætt?

Það er vel þreytandi að mæta Örnu Sif liðsfélaga mínum í Val á æfingum en í leik þá var Gunnhildur Yrsa leikmaður Stjörnunnar erfið að eiga við.

Ísabella Sara Tryggvadóttir leikmaður Vals.
Ísabella Sara Tryggvadóttir leikmaður Vals.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Hver er sætasti sigurinn?

Ég er svona týpan sem lenti alltaf í öðru sæti þannig það er ekkert sem svona sem kemur upp. Eða jújú það var alveg gaman að skora og vinna Finna í uppbótartíma með u-17 landsliðinu á Development Tournament í byrjun þessa árs og sigra mótið í leiðinni.

Hver eru markmiðin þín?

Mig langar að komast í A-landsliðið og vera lykilmaður þar. Svo er alltaf draumur að komast út og myndi ekki skemma fyrir að spila í meistaradeild Evrópu.

Hver er fyrirmyndin þín?

Leit alltaf mikið upp til bróður míns, Guðmundar Andra Tryggvasonar leikmann Vals, en Cristiano Ronaldo hefur alltaf verið númer eitt.

Hvert er draumaliðið þitt?

PSG eða Barcelona.

Áttu skemmtilega sögu úr fótboltaferð?

Já þegar við tókum Ronaldo fagnið á æfingamótinu, Development Tournament í Portúgal í byrjun þessa árs og enduðum í fréttunum.

Hvað gerir þú á hvíldardegi?

Ef ég finn að ég er mjög þreytt í líkamanum reyni ég bara að taka því rólega og slaka á en annars bara eyða tíma með vinunum eða fjölskyldunni.

Skemmtileg staðreynd um þig?

Er tvíburi.

Viðtöl við alla knattspyrnuleikmennina má lesa í blaðinu Eftir vinnu, sem kom út fyrir helgi.