Audi fagnar 40 ára afmæli Audi Sport Gmb með viðhafnarútgáfu af Audi RS e-tron GT Ice Race ediAon. Aðeins voru framleidd 99 eintök í heiminum og er eintak nr. 22 nú til sölu á Íslandi. Mikil eftirspurn var eftir þessari sérstöku útgáfu en til samanburðar verða eingöngu fjórir bílar í boði á Englandi.

Bíllinn er hreinn rafbíll og fjórhjóladrifinn. Rafmagnið skilar þessum sportbíl alls 598 hestöflum og hámarkstogið er 830 Nm. Bíllinn er aðeins 3,3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Drægnin er allt að 495 km.

Audi RS e-tron GT Ice race ediAon er innblásinn af árlega GP Ice Race kappakstrinum sem haldinn er nálægt Zell am See í austurrísku Ölpunum. Hönnunarteymi Audi segir að sláandi litur bílsins feli í sér alvísun í snjókristalla og ísvötn. Audi hringirnir Sórir sem eru einkennismerki Audi hafa verið gerðir hvíAr, en svörtu 21 tommu álfelgurnar standa upp úr yfirbyggingunni sem er innblásin af snjólandslagi. Þessi 598 hestafla ofurbíll er alrafmagnaður, 3,3 sekúndur í hundraðið og dregur allt að 495 km á hleðslunni.

Bíllinn verður til sýnis í sýningarsal Audi, á Laugavegi nk. laugardag 23. mars á milli kl. 12 og 16 og er aðeins um þennan eina sýningardag að ræða.

Í sýningarsalnum verða einnig aðrar bifreiðar frá Audi og má þar nefna Audi TT, Audi GT og Audi Q8 e- tron.