Ný stjórn og formaður voru kjörin á aðalfundi Ungra athafnakvenna, sem haldinn var 28. maí sl. í Húsi atvinnulífsins.

Á fundinum var farið yfir starfsemi og rekstur á liðnu starfsári sem var heldur betur viðburðaríkt með 16 viðburði. Viðfangsefnin voru fjölbreytt en fyrir utan hefðbundna viðburði eins og opnunarviðburði, fyrirtækjaheimasóknir og tengslakvöld má segja að megin þema ársins hafi verið fjárhagslegt sjálfstæði kvenna, kvenheilsa og kynbundið ofbeldi.

María Guðjónsdóttir, fráfarandi formaður UAK var fundarstjóri.
© Steina Matt (Steina Matt)

Einnig var farið yfir ársreikning félagsins fyrir liðið starfsár og hann borinn upp til samþykktar. Fjölmörg fyrirtæki styrktu félagið á árinu, má meðal annars nefna Arion banka, Sjóvá, Hagar, Festi, Ölgerðin, Nasdaq, Landsvirkjun, Deloitte, Rio Tinto og Innes ásamt fjölda annarra fyrirtækja og er stjórn UAK þakklát fyrir styrkinn.

Frá aðalfundi UAK.
© Steina Matt (Steina Matt)

Að lokum var komið að kosningu til stjórnar og formanns. Þrjár stjórnarkonur, Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir, Hugrún Elvarsdóttir og María Kristín Guðjónsdóttir luku tveggja ára stjórnarsetu og voru því þrjú stjórnarsæti laus fyrir 2024-2026. Einnig luku Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir og Sigríður Borghildur Jónsdóttir árs setu sem varamenn.

Alls bárust tíu löggild framboð til stjórnar en það voru þær Athena Neve Leex, Birta María Birnisdóttir og Melkorka Mist Gunnarsdóttir sem hlutu flest atkvæði. Alma Stefánsdóttir og Thelma Lind Valtýrsdóttir hlutu flest atkvæði á eftir þeim og munu sitja sem varamenn til eins árs.

María Guðjónsdóttir, fráfarandi formaður UAK og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, nýkjörinn formaður UAK.
© Steina Matt (Steina Matt)

„Ég hlakka til spennandi starfsárs og mér líst virkilega vel á nýkjörna stjórn Ég hef lagt áherslu á að efla enn frekar og víkka út tengslanet kvenna þvert á geira og mun áfram beita mér fyrir því. En samtakamátturinn og samtalið verður áfram leiðarljós í öllu starfi þessa öfluga félagskapar,“ segir Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, sem var kjörin formaður fyrir starfsárið 2024-2025.