Anna Jóna Kjartansdóttir hefur verið ráðin gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri hjá Terra. Hún hefur hafið störf í teymi menningar og sjálfbærni sem er stoðsvið Terra og dótturfélags þess og mun leiða þróun í gæða-, umhverfis- og öryggismál hjá samstæðunni.

Hún kemur til Terra frá Ístak en þar starfaði hún sem gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri síðastliðin 5 ár þar sem hún bar ábyrgð á stjórnunarkerfi Ístaks ásamt öðrum verkefnum fyrir framkvæmdastjórn þvert á félagið.

Áður starfaði hún hjá Jarðborunum einnig sem gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri og þar áður hjá Mannvit sem verkefnastjóri og umsjónarmaður umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfis. Anna er með B.Sc. í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í Civil Engineering hjá DTU.

„Anna kemur inn með mjög mikla reynslu á sviði gæða-, umhverfis- og öryggismála. Það er margt fram undan hjá Terra og það er mikill fengur að fá Önnu inn til að leiða þessa mikilvægu málaflokka. Hún er lykilstarfsmaður í þróun gæða-, umhverfis- og öryggismenningar félagsins. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa,” segir Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri menningar og sjálfbærni hjá Terra.