Einar Már Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandair Cargo en hann hefur sinnt starfinu tímabundið frá 14. september sl. Hann hóf störf hjá Icelandair árið 2014 sem forstöðumaður á tæknisviði félagsins.

Áður starfaði hann sem innkaupastjóri hjá Rio Tinto Alcan (ISAL) í þrjú ár og þar á undan sem rekstrarstjóri hjá Skeljungi.

„Það er ánægjulegt að tilkynna ráðningu Einars Más Guðmundssonar sem framkvæmdastjóra Icelandair Cargo. Aðaláherslan hjá okkur núna er að bæta arðsemina í fraktstarfsemi okkar og styrkja enn frekar tengslin við lykilviðskiptavini. Einar Már býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á flugrekstri og hefur náð góðum árangri í sínum störfum innan Icelandair sem mun nýtast vel í þessu hlutverki,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Einar er með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School og BS-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri.