Steypustöðin hefur ráðið tvo stjórnendur sem báðir koma úr röðum fyrirtækisins. Sigríður Björnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri rekstrar og mannauðs, og Rögnvaldur Andri Halldórsson tekur við stöðu rekstrarstjóra náma Steypustöðvarinnar.

Sirrý hefur starfað hjá Steypustöðinni í þrjú ár sem framkvæmdastjóri mannauðs og mun hún koma til með að stýra rekstri í námum, efnisflutningum, viðhaldi og mannauðsmálum Steypustöðvarinnar.

Hún mun eins bera ábyrgð á að tryggja að öryggis-, gæðastöðlum og sjálfbærnimarkmiðum félagsins sé framfylgt, hámarka skilvirkni, þróa og innleiða stefnu og knýja áfram vöxt og arðsemi fyrirtækisins auk þess að bera ábyrgð á mannauðsmálum.

Sirrý er lögfræðingur að mennt og hefur áður sinnt sambærilegum hlutverkum á sínum fyrri vinnustöðum, meðal annars hjá Icelandair og AVIS.

Rögnvaldur tekur við stöðu sem rekstrarstjóri náma en hann hefur gegnt starfi viðhaldsstjóra síðastliðin fjögur ár hjá Steypustöðinni. Rögnvaldur mun stjórna daglegum rekstri námunnar, tryggja gæði þeirrar vöru sem framleidd er, öryggi starfsmanna, þróun í endurvinnslu og stuðla að innleiðingu sjálfbærnistefnu félagsins.

Hann er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík (MPM) og starfaði áður hjá Munck í véla- og jarðvinnudeild fyrirtækisins í þrjú ár.

„Ég bind miklar vonir við þetta teymi sem kemur inn á mjög spennandi tímum þar sem tækifærin eru mörg og krefjandi. Ég er sérstaklega glaður með að við getum í dag fundið fólk innan fyrirtækisins okkar. Það er hlutverk okkar sem stjórnendur að byggja upp nýja stjórnendur sem geta á síðari stigum tekið við keflinu. Þannig náum við að gera fyrirtækið sterkara og sjálfbærara til lengri tíma“ segir Björn Ingi Victorsson forstjóri Steypustöðvarinnar.