Gunnar Páll Viðarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ALVA framkvæmda hjá fjárfestingarfélaginu ALVA Capital. Gunnar er meðal annars byggingatæknifræðingur og hefur víðtæka reynslu af staðarstjórn og stýringu stórra verkefna.

Undanfarin tuttugu ár hefur hann meðal annars komið að byggingu hreinsistöðva við Klettagarða og Mýrargötu og nýbyggingar Alþingis, stíflugerð við Kárahnjúka og uppsteypu nýrra flughlaða fyrir Isavia ásamt fleiri stórum verkefnum. Gunnar starfaði áður fyrir ÞG verk og þar áður fyrir ÍAV.

ALVA framkvæmdir vinna að fjölbreyttum framkvæmdum og uppbyggingarverkefnum en meðal verkefna sem Gunnar mun stýra eru umfangsmiklar breytingar og stækkun á 22 Hill hótelinu í Brautarholti 22-24 og uppbygging fjölda íbúða og vinnustofa í Stangarhyl.

Félagið vinnur mest fyrir Alva Capital samstæðuna en stefnir á að taka þátt í útboðum, bæði fyrir hið opinbera og í einkageiranum.