Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins.

Undanfarin ár hefur starfsemi Expectus þróast í auknum mæli yfir í ráðgjöf á sviði viðskiptagreindar og upplýsingatækni. Til að skerpa á áherslum í starfsemi félagsins og þróa enn frekar aðra ráðgjöf, færist nú rekstrar- og stjórnunarráðgjöf yfir í nýtt félag.

Áherslur í nýju félagi munu felast meðal annars í stefnumótun, breytingastjórnun, stefnuinnleiðing, skipulagsmál og ýmiskonar þróunarverkefni. Þetta nýja skipulag tekur gildi 1. ágúst nk. og mun starfsemi nýja félagsins fléttast þétt saman við þjónustu móðurfélagsins, Expectus, þegar kemur að viðskiptagreiningu, gagnavinnslu og upplýsingamiðlun.

„Það er áhugaverð og spennandi áskorun að leiða nýtt félag sem byggir á þeim trausta grunni sem felst í farsælli sögu Expectus, reynslu og þekkingu sem þar er til staðar. Við munum áfram leggja mikla áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku, markmið, mælikvarða og mælaborð sem er og verður leiðarstef í öllum okkar verkefnum á sviði breytingastjórnunar og stefnuinnleiðingar,“ segir Ingibjörg Ösp.

Í stjórn félagsins sitja, auk Ingibjargar, þeir Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður og Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri Expectus.

Ragnar Guðgeirsson, stofnandi Expectus og stjórnarformaður í Expectus ráðgjöf, segir stofnun nýs félags vera lið í að þróa þjónustuframboð og styrkja fókus í ólíkum verkefnum en að félögin verði í nánu samstarfi í mörgum verkefnum.

„Áskoranir fyrirtækja í íslensku atvinnulífi taka stöðugum breytingum og því er það mikil áskorun stjórnenda og skipulagsheilda að bregðast við og aðlagast. Ein stærsta seinni tíma áskorun fyrirtækja er að ná tökum á gögnunum sínum og þeirri verðmætasköpun sem fæst með skilvirkri vinnslu, notkun og miðlun þeirra,“ segir Ragnar.