Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað Óskar Jósefsson, forstjóra FSRE. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en Óskar var valinn úr hópi 20 umsækjenda og hefur skipan í embættið þegar tekið gildi.

FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar.

Óskar hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu en hann var meðal annars framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála á árunum 2016-2021, var tímabundið forstjóri Allrahanda og settur forstjóri FSRE frá því í maí 2023.

Þá hefur hann gegnt stöðu forstjóra Landssíma Íslands hf., og Ístaks hf. auk þess að vera framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs Kaupþings banka. Óskar stýrði einnig ráðgjafastarfsemi PwC um nokkurra ára skeið auk þess að starfa sjálfstætt sem ráðgjafi.

Óskar er verkfræðingur með M.Sc. gráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmörku.