App-þróunarfyrirtækið Apparatus hefur ráðið tvo forritara í teymi sitt til að mæta fleiri og stærri verkefnum. Apparatus er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun fjölbreyttra app-lausna fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Steinar Ísaksson lauk BS prófi í tölvunarfræði frá HR 2023, en hann hafði áður lokið BS námi í viðskiptafræði frá HÍ. Hann starfaði síðast hjá Könguló ehf. við þróun app-lausna. Reynir

Reynir Freyr Hauksson er líka tölvunarfræðingur frá HR og útskrifaðist með BS-próf 2021. Hann starfaði síðast hjá Glaze sem framendaforritari en hann er einnig höfundur og meðstofnandi fjártækniappsins Dyngja, þar sem notendur geta æft sig í fjárfestingum á hlutabréfum með gervipeningum.

„Steinar og Reynir voru valdir úr hópi mjög öflugra umsækjenda og eru þeir kærkominn liðsstyrkur nú þegar við erum að taka vaxtarkipp. Báðir forritararnir munu gegna veigamiklu hlutverki í nýjum verkefnum en einnig sinna áframhaldandi þróun appa fyrir Domino's, Lyfju og Atlantsolíu,“ segir Brynjar Gauti Þorsteinsson, tæknistjóri Apparatus.