Þóranna K. Jónsdóttir hef­ur verið ráðin sérfræðingur í stafrænni stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Pipar\TBWA og The Engine, að því er kemur fram í tilkynningu.

Nýverið leiddi hún uppbyggingu Entravision á Íslandi sem er vottaður þjónustu- og söluaðili Meta, eiganda Facebook og Instagram. Þóranna hefur áratuga reynslu af markaðsmálum og hefur einnig verið startup mentor í yfir áratug m.a. hjá Klak, Snjallræði Háskóla Íslands o.fl. Þóranna gegnir jafnframt stöðu Angel Ambassador hjá Nordic Ignite fjárfestingasjóðnum.

The Engine er dótturfélag Pipar\TBWA sem sérhæfir sig í heildstæðri og strategískri stafrænni markaðssetningu. Nýverið opnaði félagið skrifstofu í Kaupmannahöfn og er nú með skrifstofur í Reykjavík, Osló og Kaupmannahöfn. Unnið er að opnun skrifstofu í Helsinki og Stokkhólmi og áætluð er opnun í Helsinki á fyrri helmingi 2024.

„Þóranna hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í stafrænni stefnumótun og stafrænum leiðum í markaðssetningu. Þekking og reynsla sem nýtist viðskiptavinum Pipar\TBWA og The Engine á Íslandi gríðarlega vel og hefur strax byrjað að láta til sín taka. Hún er góð viðbót við það sterka teymi sem við erum með hér hjá okkur,” segir Guðmundur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Pipar\TBWA um ráðninguna.

Þóranna, sem tók við starf­inu 1. maí, hefur MBA gráðu frá University of Westminster þar sem hún sérhæfði sig í strategískri markaðssetningu og leiðtogahæfni.

„Að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri vegferð sem The Engine er á þykir mér virkilega spennandi og er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt. The Engine hefur mjög sterkan grunn og með fjölbreyttan hóp starfsfólks víðsvegar að í heiminum. Fótspor okkar er að vaxa á norðurlöndunum með starfsemi í The Engine í Noregi og Danmörku en á döfinni er að opna einnig í Finnlandi. Áhugasvið mitt er einmitt á sviði stafrænnar stefnumótunar og gagnadrifinnar árangursmiðaðrar markaðssetningar” segir Þóranna.