Arnarlax tilkynnir breytingar í framkvæmdastjórn félagsins. Rúnar Ingi Pétursson tekur við sem framkvæmdastjóri yfir fiskvinnslu félagsins, Hjörtur Methúsalemsson og Karen Ósk Pétursdóttir koma tvö ný inn í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Hjörtur hefur starfað sem verkefnastjóri í viðskiptaþróunardeild Arnarlax síðan í apríl 2021 og verður nú yfirmaður viðskiptaþróunardeildar. Hann hefur starfað í fiskeldi á Íslandi frá 2017, áður hjá Arnarlaxi og hjá Matvælastofnun. Hjörtur lauk meistaragráðu í líffræði með sérhæfingu í fiskeldi frá Háskólanum í Bergen í Noregi haustið 2023.

Karen Ósk hefur starfað sem mannauðsstjóri fyrirtækisins frá því í lok júlí 2022. Karen er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í skattarétti og reikningsskilum frá HÍ auk þess er hún með MSc í mannauðsstjórnun frá sama skóla.

Áður en Karen kom til Arnarlax starfaði hún hjá Bandalagi Háskólamanna sem sérfræðingur í kjaramálum og þar áður hjá Kjarafélagi Viðskiptafræðinga og Hagfræðinga frá árinu 2014.

Rúnar Ingi hefur tekið við sem framkvæmdarstjóri fiskvinnslu hjá Arnarlax. Hann er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur hann starfað sem framleiðslustjóri hjá Arnarlax síðan í maí 2021.