Birna Hlín Káradóttir, sem gegnt hefur starfi yfirlögfræðings Arion banka frá árinu 2019, tekur við starfi framkvæmdastjóra rekstrar og menningar hjá bankanum.

Í tilkynningu segir að stofnun sviðsins kalli ekki á breytingar á framkvæmdastjórn þar sem Birna Hlín hefur setið í framkvæmdastjórn Arion banka frá árinu 2020.

Jafnframt segir að nýtt skipurit taki gildi í dag hjá Arion banka. Stofnað hefur verið nýtt svið, rekstur og menning, sem mun taka yfir ýmis verkefni sem áður tilheyrðu öðrum sviðum auk þess sem nýtt umbreytingarteymi verður hluti af sviðinu.

„Markmið breytinganna er aukið samstarf stoðsviða, aukin skilvirkni í rekstri, markviss stýring umbreytingarverkefna og enn skýrari fókus á þjónustu og upplifun viðskiptavina. Auk þess mun sviðið gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og mótun fyrirtækjamenningar Arion banka.“

Birna Hlín hefur gegnt starfi yfirlögfræðings hjá Fossum mörkuðum, Straumi fjárfestingarbanka og Straumi-Burðarás fjárfestingabanka auk Arion banka.

Hún hefur kennt lög um fjármálamarkaði í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands, setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og félagasamtaka hérlendis og erlendis. Birna Hlín er með AMP-gráðu frá IESE Business School í Barcelona og lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með málflutningsréttindi og próf í verðbréfaviðskiptum.