Innréttað verður sérstakt sölusvæði fyrir vörur 66°Norðurs, Rammagerðarinnar og Varma á stöðvum þjónustustöðvum N1 í Borgarnesi, Staðarskála, á Blönduósi, Egilsstöðum, Höfn og Hvolsvelli. Þá er stefnt að því að opna stóra verslun 66°Norður við nýja þjónustustöð N1 í Vík í Mýrdal.

Samstarfssamningurinn kemur til með að stórauka framboð á útivistar- og prjónavörum á þjónustustöðvum N1 við hringveginn að því er segir í fréttatilkynningu.

„Með samningnum verður úrval íslenska handverksins aukið á N1 með viðbættu framboði á hönnunarvörum frá Rammagerðinni og prjónavörum Varma í samræmi við vaxandi eftirspurn viðskiptavina á landsbyggðinni og einnig erlendra ferðamanna eftir góðum íslenskum útivistarfatnaði og fallegum prjónavörum.“

Samstarfinu fylgir bætt þjónusta

Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður segir mörg tækifæri felast í samstarfinu. Þjónustustöðvar N1 séu vel í sveit settar víða um land, meðal annars þar sem 66°Norður hafi ekki tekist að sinna eins vel og fyrirtækið hefði viljað.

„Við munum velja vörurnar vel sem boðnar verða hjá N1 til að leggja sem best áherslu á framsetningu íslensku hönnunarinnar og handverksins, sem lifað hafa með þjóðinni svo lengi sem raun ber vitni og erlendir ferðamenn sýna orðið mikinn áhuga,“ segir Bjarney.

Ýmir Örn Finnbogason, forstjóri N1, segir að N1 og forveri þess, Olíufélagið, hafi í marga áratugi boðið viðskiptavinum sínum vörur frá Sjóklæðagerðinni, eins og 66°Norður hét áður, og því standi samstarf fyrirtækjanna á gömlum merg.

„Sjóklæðagallarnir, gúmmívettlingarnir og fleira voru lengi í öndvegi í samstarfinu sem fólk allt í kringum landið notaði í daglegum störfum; sjómenn, fiskverkafólk, bændur og í raun allir sem unnu og vinna utandyra í rigningum og vosbúð enda er hann enn afar vinsæll meðal sjómanna og bænda, ekki síst í smalamennsku,“ segir Ýmir.