Alvotech tilkynnti í dag að japanska heilbrigðis-, atvinnu- og velferðarráðuneytið hafi veitt Fuji Pharma Co. Ltd., samstarfsaðila Alvotech í Japan, leyfi til markaðssetningar- og sölu á AVT04 (ustekinumab), líftæknilyfjahliðstæðu Stelara.

Í tilkynningu frá Alvotech segir að AVT04 sé fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan við Stelara sem hlýtur markaðsleyfi á alþjóðlegum mörkuðum. Fram til 30. júní sl. námu tólf mánaða tekjur af sölu á Stelara rúmum 10 milljörðum Bandaríkjadala (1.360 milljörðum króna) samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda þess. Stelara er því eitt af mest seldu líftæknilyfjum heims.

„Það er mikið fagnaðarefni að markaðsleyfi fyrir AVT04 í Japan sé nú í höfn og er þetta nú önnur líftæknilyfjahliðstæðan sem við setjum á markað. Alvotech og Fuji vilja auka aðgengi sjúklinga að nauðsynlegum líftæknilyfjum. Samstarf okkar byggir á sterkum grunni og við vonumst til að geta í sameiningu annað vaxandi eftirspurn eftir líftæknilyfjahliðstæðum í Japan,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

AVT04 er fyrsta líftæknilyfjahliðstæðan sem hlotið hefur markaðsleyfi af þeim sjö fyrirhuguðu líftæknilyfjahliðstæðum sem Alvotech og Fuji vinna að í sameiningu. Alvotech sér alfarið um þróun og framleiðslu en Fuji um markaðssetningu og sölu í Japan en samstarfssamningur Alvotech við Fuji var fyrst kynntur í nóvember 2018.