Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga kynna nýja skýrslu um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu. Hefst kynningin núna kl. 10 og lýkur kl. 11:30. Streymið má nálgast hér að neðan.
Skýrslan sem nú er gefin út byggir á sömu aðferðafræði og sömu innviðir eru metnir og í sambærilegri skýrslu samtakanna frá árinu 2017 en þá var í fyrsta sinn hér á landi gefin út heildstæð skýrsla um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi. Markmið með útgáfu skýrslunnar er að lýsa stöðu helstu innviða hagkerfisins og draga fram hvað þarf til að tryggja gæði þessara meginstoða íslensks samfélags. Í skýrslunni er lagt mat á endurstofnvirði og viðhaldsþörf, ástand innviðanna er metið og greint frá hverjar framtíðarhorfurnar eru.
Innviðirnir sem fjallað er um í skýrslunni eru flugvellir, hafnir, vegakerfi, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuvinnsla, raforkudreifing og -flutningur, fasteignir ríkis og sveitarfélaga og úrgangsmál.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Ávarp - Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Samantekt - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
- Fráveitur - Reynir Sævarsson, byggingarverkfræðingur hjá Eflu og formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga
- Vegakerfi - Ásmundur Magnússon, byggingartæknifræðingur á samgöngusviði hjá Mannviti
- Fasteignir ríkis og sveitarfélaga - Sverrir Bollason, skipulagsfræðingur hjá VSÓ
- Umræður - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
- Fundarstjórn - Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI