SFF dagurinn, sem haldinn er af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, fer fram í dag klukkan 15-17 undir yfirskriftinni Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár.

Tilefnið er að í ár eru 150 ár frá upphafi innlendrar reglusetningar um fjármálafyrirtæki hér á landi. Sú reglusetning hófst með tilskipun Kristjáns IX um hlunnindi fyrir sparisjóði á Íslandi, sem birt var sama dag og Kristján IX staðfesti fyrstu stjórnarskrá Íslands, 5. janúar 1874. Af því tilefni verður horft yfir farinn veg og rýnt í þær áskoranir sem fjármálaþjónusta framtíðarinnar stendur frammi fyrir.

Þátttakendur á SFF deginum verða:

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.
  • Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og formaður stjórnar SFF.
  • Kari Olrud Moen, framkvæmdastjóri Finans Norge, systursamtaka SFF í Noregi.
  • Margrét Einarsdóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
  • Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka.
  • Stefán Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri Arctica Finance.
  • Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
  • Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.