Stjórn Marels hafnaði ein­róma ó­skuld­bindandi vilja­yfir­lýsingu banda­ríska mat­væla­fyrir­tækisins John Bean Technologies Cor­por­ation um mögu­legt kaup­til­boð á öllu hluta­fé Marels. Að mati stjórnarinnar tekur til­boðið hvorki til­lit til innra virði rekstrar Marels né þeirrar á­hættu sem fælist í fram­kvæmd við­skiptanna.

Marel greindi á föstudaginn frá ó­skuld­bindandi vilja­yfir­lýsingu JBT en banda­ríska fyrir­tækið bauð 3,15 evrur á hlut og hugðist greiða 75% af kaup­verðinu í formi eigin bréfa og 25% í reiðu­fé. Hlut­hafar Marels myndu eignast 36% hlut í JBT hefðu við­skiptin gengið eftir.

Í kauphallartilkynningu JBT segir að viljayfirlýsingunni fylgi ó­aftur­kallan­leg yfir­lýsing Eyris Invest hf., eig­anda 24,7% hluta­fjár í Marel, um sam­þykki fé­lagsins verði til­boð lagt fram.

Stjórn Eyris sam­þykkti að leggja fram slíka óafturkallanlega yfir­lýsingu en at­hygli vekur að stjórnar­maður Eyris, Ólafur Steinn Guð­munds­son, situr einnig í stjórn Marels sem hafnar vilja­yfir­lýsingunni ein­róma nokkrum dögum síðar.

Tjáir sig ekki

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins þá voru hendur Eyris ekki bundnar þrátt fyrir þetta orðalag. Félagið hefði hvorki þurft að taka tilboði upp á nákvæmlega 3,15 evrur né hafna tilboði frá öðrum.

Við­skipta­blaðið óskaði eftir stað­festingu á þessu frá Frið­riki Jóhanns­syni stjórnar­for­manni Eyris. Þau svör bárust að Eyrir Invest hf. muni ekki tjá sig að svo stöddu um málið. Sjái félagið ástæðu til þess að tjá sig verði það gert í formi yfirlýsingar sem birt verði á heimasíðu þess.

Ljóst er að tilboðsdrög JBT hefðu þýtt að Eyrir hefði svo gott sem getað greitt upp sínar skuldir og auðvitað einnig eignast hlut í JBT. Að þessu leyti var tilboðið fýsilegur kostur fyrir suma hluthafa Eyris, sér í lagi þar sem Eyrir er skuldsett félag í dag.

Hefðu stjórnendur Eyris til að mynda selt 5% hlut í Marel fyrir um tveimur árum, þegar gengið var í hæstu hæðum, þá ætti félagið 19-20% hlut í Marel skuldlaust í dag en það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.

Knýja fram hærra verð

Heimildir Viðskiptablaðsins herma að þrátt fyrir yfirlýsingu Marel þá sé sala á fyrirtækinu ekki útilokuð. Stjórnendur sætta sig augljóslega ekki við verðmiðann, sem settur hefur verið á fyrirtækið en mögulega eru þeir að knýja á um hærra tilboð, hvort sem það verður frá JBT eða öðrum.

Samkvæmt þessu þá er yfirlýsing Marel mögulega biðleikur í skákinni um framtíð Marel. Þeir sérfræðingar á markaði sem blaðið ræddi við í gær túlkuðu yfirlýsingu stjórnar Marel á þann veg og því eru enn ríkar væntingar á markaði um draga kunni til tíðinda í fyrirsjáanlegri framtíð.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.