Á­vöxtunar­krafa ríkis­skulda­bréfa í Banda­ríkjunum hefur ekki verið lægri síðan í sumar en krafan á tíu ára ríkis­skulda­bréf fór úr 4,286 í 4,171% í gær.

Krafan fór yfir 5% í lok októ­ber en hefur síðan þá lækkað tölu­vert. Sam­hliða lækkuninni hefur hluta­bréfa­markaðurinn vestan­hafs vaknað til lífsins eftir nokkra dræma mánuði í röð.

Tækni­fyrir­tækin halda á­fram að halda hluta­bréfa­vísi­tölum uppi en Nas­daq vísi­talan, þar sem tækni­fyrir­tækin eru þunga­miðjan, fór upp um 0,3% í gær á meðan S&P vísi­talan lækkaði um minna en 0,1% og Dow Jones lækkaði um 80 punkta.

Markaðsvirði Apple 3 þúsund milljarðar dala

Sjö stóru tækni­fyrir­tækin á markaði hækkuðu öll nema Meta sem lækkaði um 0,5%. Hluta­bréf í ör­flögu­fram­leiðandanum Nvidia hækkuðu um 2,3% á meðan App­le hækkaði um 2,1%.

Miðað við dagsloka­gengi App­le í gær er markaðs­virði fé­lagsins yfir þrjú þúsund milljörðum Banda­ríkja­dala.

The Wall Street Journal greinir frá.