Sérblaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgir Viðskiptablaðinu á morgun. Í blaðinu er að finna lista yfir þau fyrirtæki, sem standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri.
Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárinu 2017. Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna, eignir yfir 80 milljónum og eiginfjárhlutfallið þarf að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.100 fyrirtæki á listann eða um 3% fyrirtækja landsins.
Auk lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki eru í blaðinu fjölmörg viðtöl, greiningar og fróðlegt talnaefni.
Nánar er fjallað um málið í Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, fylgiriti Viðskiptablaðsins sem unnið var í samstarfi við Kelduna. Blaðið er opið öllum og er hægt að nálgast pdf-útgáfu hér .