Gengi danska og lyfja- og lækninga­vöru­fyrir­tækisins Novo Nor­disk í Kaup­höllinni í New York rauk upp um 17% eftir að að ný rann­sókn á megrunar­lyfinu Wegovy var birt í gær.

Í rann­sókninni kemur í ljós að Wegovy hjálpar ekki bara fólki að grennast heldur hefur það já­kvæð á­hrif á hjartað. Lyfið er sagt draga úr líkunum á hjarta­á­falli, slögum og öðrum hjarta- og æða­sjúk­dómum um 20%.

Í kjölfarið rauk gengið í NYSE ú 161 Bandaríkjadal í 189 dali og hefur haldist stöðugt þar í dag.

Fregninar höfðu einnig áhrif á B bréf Novo Nordisk í Danmörku en gengið opnaði á þriðjudaginn í 1095 dönskum krónum en dagslokagengið var 1284 danskar krónur. Gengið hefur lækkað örlítið í dag en stendur nú í 1258 krónum.

Fregninar höfðu einnig áhrif á gengið í Kauphöllinni í Danmörku en Novo Nordisk opnaði á þriðjudaginn í 1095 dönskum krónum en dagslokagengið var 1284 danskar krónur. Gengið hefur lækkað örlítið í dag en stendur nú í 1258 krónum.

Gögnin eru sögð setja þrýsting á banda­rísk trygginga­fyrir­tæki til að veita skjól­stæðingum sínum að­gang að lyfinu og féllu hluta­bréf heil­brigðis­trygginga­fyrir­tækja í kjöl­farið.

Hluta­bréf United Health Group féllu um 1%, Ele­venace Health féll um 1,7%, Humana og Centene féllu bæði um 1%.