Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Ís­lands hefur á­kveðið að halda stýri­vöxtum ó­breyttum. Mun þetta vera í þriðja sinn í röð þar sem nefndin kemur saman og á­kveður að halda vöxtum ó­breyttum.

Megin­vextir bankans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því á­fram 9,25%.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Ís­lands hefur á­kveðið að halda stýri­vöxtum ó­breyttum. Mun þetta vera í þriðja sinn í röð þar sem nefndin kemur saman og á­kveður að halda vöxtum ó­breyttum.

Megin­vextir bankans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því á­fram 9,25%.

„Áhrif peningastefnunnar koma æ skýrar fram. Raunvextir hafa hækkað og verðbólga hjaðnað nokkuð frá nóvemberfundi nefndarinnar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Vísbendingar eru um að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið. Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans fer spennan í þjóðarbúinu minnkandi og snýst í slaka undir lok ársins. Verðbólguhorfur hafa því batnað,“ segir í tilkynningu nefndarinnar í morgun.

Verð­bólga á árs­grund­velli mældist 6,7% í janúar eftir að vísi­tala neyslu­verðs lækkaði um 0,16% milli mánaða. Árs­verð­bólga lækkaði því um heilt prósent milli mánaða en janúar­út­sölur og lægri flug­far­gjöld höfðu mikil á­hrif í mánuðinum.

„Langtímaverðbólguvæntingar hafa þó lítið breyst og haldist nokkuð yfir markmiði. Þótt hægt hafi á vinnumarkaði er spenna þar enn til staðar. Verðbólga gæti því áfram reynst þrálát. Þá er einnig óvissa um niðurstöður kjarasamninga og mögulegar aðgerðir í ríkisfjármálum tengdar þeim og vegna jarðhræringa á Reykjanesi,“ segir þar enn fremur.

Bætir nefndin við að mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Ís­lands mun gera grein fyrir á­kvörðun sinni í beinni kl. 9:30. Hægt verður að fylgjast með á vef Við­skipta­blaðsins.

Ás­geir Jóns­son, seðla­banka­stjóri og for­maður peninga­stefnu­nefndar, Rann­veig Sigurðar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri peninga­stefnu og stað­gengill formanns, og Þórarinn G. Péturs­son, aðal­hag­fræðingur Seðla­bankans, verða á fundinum og kynna einnig efni peninga­mála.