Kerecis verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vestra samkvæmt samningi sem tilkynnt var um á Ísafirði í dag. Kvenna-, karla- og ungmennalið Vestra munu öll leika í búningum merktum Kerecis í sumar og heimavöllur félagsins hlýtur nafnið Kerecis-völlurinn.

Guðmundur Fertram, stofnandi og forstjóri Kerecis, segir að hjarta Kerecis slái á Ísafirði og að það sé gaman að geta lagt knattspyrnudeild Vestra lið. Íþrótta- og æskulífsstarf sé einn af máttarstólpum samfélagsins og frábær árangur Vestra sé mikil lyftistöng fyrir Vestfirði.

„Árangur Vestra er táknrænn fyrir uppganginn á Ísafirði og nágrenni undanfarin ár. Atvinnulífið blómstrar, íbúum fjölgar og mannlíf dafnar. Allt helst þetta í hendur og við viljum taka þátt í því að efla samfélagið í okkar heimabæ,” segir Guðmundur Fertram.

Samúel Samúelsson, stjórnarmaður í knattspyrnudeild Vestra, fagnar samstarfinu og segir stuðninginn gríðarlega mikilvægan.

„2024 er tímamótaár hjá Vestra. Félagið mun leika í efstu deild karla í fyrsta sinn í ár og jafnframt tefla fram liði í meistaraflokki kvenna í fyrsta skipti síðan 2013. Þá er barna- og ungmennastarfið í miklum blóma og hér ríkir mikil eftirvænting eftir sumrinu. Kostnaður vegna alls þessa er verulegur, sérstaklega vegna ferðalaga, og við erum afar þakklát fyrir veglegan stuðning Kerecis við félagið,“ segir Samúel.