Gengi Marel lækkaði um rúm 6% í 1,1 milljarða króna við­skiptum í Kaup­höllinni í dag. Gengi fé­lagsins hefur ekki verið lægra í fjögur ár en dagsloka­gengið var 410 krónur sem er lækkun úr 438 krónum milli daga.

Gengis­lækkun Marels hafði nei­kvæð á­hrif á úr­vals­vísi­töluna OMXI 10 sem lækkaði um 2,11% í dag og lokaði í 2.228 stigum en fara þarf aftur til ársins 2020 til að finna sam­bæri­lega lægð úr­vals­vísi­tölunnar.

Einungis tvö skráð fé­lög hækkuðu í Kaup­höllinni í dag en Iceland Sea­food fór upp um 1,82% í 17 milljón króna við­skiptum en fé­lagið leiddi hækkanir á markaði í gær eftir að Bjarni Ár­mans­son for­stjóri til­kynnti að hann væri að láta af störfum í nóvember.

Hlutabréf Play hækkuðu um 10%

Alls lækkaði gengi 18 skráðra fé­laga í Kauphöllinni í dag. Kvika banki lækkaði um 1,64% í 156 milljón króna við­skiptum. Eim­skip lækkaði um 2,43% í 68 milljón króna veltu og Reginn lækkaði 2,54% í 16 milljón króna veltu.

Hagar lækkuðu um 2,19% í 69 milljóna króna veltu. Dagsloka­gengi Haga var 67 krónur líkt og dagsloka­gengi föstu­dagsins en gengið rauk upp fyrir helgi þegar fé­lagið færði af­komu­spá sína upp.

Play hækkaði um rúm 10% á First North markaðnum í 17 milljón króna veltu og var dagsloka­gengið 8,55 krónur. Gengi flug­fé­lagsins hefur lækkað um 30% síðast­liðinn mánuð og hafa stjórn­endur fé­lagsins boðað til upp­lýsinga­fundar með fjár­festum og markaðs­aðilum um reksturinn á fimmtu­daginn.

Heildar­velta í Kaup­höllinni var 3,5 milljarðar.