Hluta­bréfa­verð Marel hefur lækkað um rúm 5% það sem af er degi í 350 milljón króna við­skiptum.

Gengi Mar­les hefur átt erfitt upp­dráttar í septem­ber­mánuði og lækkað um tæp 13% síðast­liðinn mánuð.

Gengið náði sögu­legri lægð í júnímánuði þegar það fór undir 410 krónur en það stóð hæst í 966 krónum í septem­ber 2021.

Dagsloka­gengi Marel í gær var 438 krónur en gengið stendur nú 413 krónum.

Gengis­lækkun Marel hefur haft nei­kvæð á­hrif á úr­vals­vísi­töluna OMXI 10 sem hefur lækkað um 1,6% í dag.

Markaðs­virði Marel tók högg í byrjun maí þegar félagið birti ársfjórðungsuppgjör fyrsta ársfjórðungs.
Gengið fór undir 500 krónur og féll um 17,6% á einum degi. Markaðs­virði Marel féll um 80 milljarða króna sama dag.

Í uppgjörinu kom fram að Marel hagnaðist um 9,1 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi, eða sem nemur 1,35 milljörðum króna miðað við gengið í lok mars.

Til samanburðar hagnaðist félagið um 21,7 milljónir evra á sama fjórðungi í fyrra.

Mótteknar pantanir námu 362,6 milljónum evra samanborið við 421,7 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Stóð pantanabókin í 590,4 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs og dróst saman um 6% milli ára.