Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II (OACB) samþykkti í gær samruna við Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Hlutabréf í Alvotech verða þá tekin til viðskipta á NASDAQ markaðnum í New York 16. júní. Þá er gert ráð fyrir að viðskipti með hlutabréf Alvotech geti hafist á íslenska First North-markaðnum í þann 23. júní. Á báðum mörkuðum verða hlutabréfin auðkennd „ALVO“.

„Þetta eru afar spennandi skref fyrir Alvotech teymið, samstarfsaðila okkar og alla þá sem vilja stuðla að auknu framboði líftæknilyfja sem uppfylla ítrustu kröfur og lækka kostnað heilbrigðiskerfisins,“ segir Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, í fréttatilkynningu. „Frá stofnun fyrirtækisins fyrir áratug höfum við helgað krafta okkar því að bæta aðgengi að meðferðarúrræðum sem geta gjörbreytt lífsgæðum sjúklinga.“

„Alvotech er að stíga inn á hlutabréfamarkað einmitt þegar heilbrigðisþjónusta um allan heim stendur á miklum tímamótum, þar sem kröfur um aukið aðgengi og lægri kostnað verða sífellt háværari,“ er haft eftir Zaid Pardesi, framkvæmdastjóra hjá Oaktree, fjármálastjóra og stjórnanda OACB. „Við erum einstaklega stolt af því að fá að starfa með félagi sem getur í senn bætt líf sjúklinga og aukið sjálfbærni heilbrigðiskerfisins. Við hlökkum til að starfa áfram með Alvotech teyminu og stuðla þannig að því að fyrirtækið nái því markmiði að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja á öllum helstu mörkuðum heimsins.“