Advania og InfoMentor hafa gengið frá kaupsamningi um kaup InfoMentor á framhaldsskólalausninni Innu og leikskóla- og frístundalausninni Völu, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Með kaupunum tekur InfoMentor yfir allar skuldbindingar Advania gagnvart viðskiptavinum þessara lausna og því starfsfólki sem þróar og þjónustar þessar lausnir. Alls munu 12 sérfræðingar Advania færast með lausnunum yfir til InfoMentor en það eru stjórnendur, vörustjórar, og aðrir sérfræðingar í þróunar- og þjónustuteymi.

Inna er upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla og inniheldur m.a. kennslukerfi og nemendabókhald. Vala er lausn fyrir sveitarfélög sem nær yfir umsýslu leikskóla, skólamat, frístundastarf og vinnuskóla.

„Hjá Advania metum við vöru- og þjónustuframboð okkar reglulega til að skerpa á fókus út frá nýjustu tækni og þróun markaðarins,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

„Undanfarin misseri höfum við rýnt stöðu og framtíðarsýn þeirra lausna sem Advania hefur þróað undanfarin ár fyrir nemenda- og skólaumsýslu. Í kjölfar þess tókum við ákvörðun um að stíga út úr því að þróa og viðhalda sértækum lausnum á þessu sviði. Það kom svo í ljós að áhugi væri hjá fjárfestum að kaupa þessar lausnir út úr félaginu og eftir viðræður við aðila á markaðnum var gengið til samninga við InfoMentor. Við sjáum á eftir frábærum vinnufélögum og viðskiptavinum en vitum af þeim í góðum höndum hjá öflugu fyrirtæki.“

InfoMentor mun halda áfram þróun lausnanna tveggja og vinna náið með viðskiptavinum í að þróa áfram gæða kerfi í takt við þróun og þarfir markaðarins.

„Eftir að viðræður hófust á milli InfoMentor og Advania var strax ljóst að þessar lausnir ættu góða samleið við þá vegferð sem InfoMentor er á og tækifæri væru þar til að gera enn betur með því að taka saman höndum. Hjá InfoMentor starfar hópur sérfræðinga sem lifir og hrærist í skólalausnum og hefur víðtæka sérfræðiþekkingu á íslenskum og sænskum markaði. Með þessa þekkingu og þekkingu sérfræðinga skólalausna Advania gefst tækifæri til að halda áfram að þróa öflugar hugbúnaðarlausnir fyrir þessa markaði með hagsmuni nemenda og skólasamfélagsins að leiðarljósi,“ segir Johan Krantz, forstjóri InfoMentor.

Hugbúnaðarfyrirtækið InfoMentor var stofnað á Íslandi árið 1990 og er með yfir þriggja áratuga reynslu af rekstri og þróun hugbúnaðar og tæknilausna fyrir leik- og grunnskóla. Fyrirtækið hefur í dag hátt í milljón daglega notendur á Íslandi og í Svíþjóð.