Seljendur hlutabréfa í almennu hlutafjárútboði Íslandshótela hafa ákveðið að falla frá útboði og þar með skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland en almennu hlutafjárútboði Íslandshótela lauk klukkan fjögur í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum sem send var nú klukkan rúmlega ellefu í kvöld. Í ljósi þessarar ákvörðunar Íslandshótela munu allar áskriftir falla sjálfkrafa niður.

Í tilkynningunni segir að vel á þriðja þúsund aðilar hafi tekið þátt í útboðinu og skráð sig fyrir hlutum að verðmæti ríflega 8 milljarða króna.

„Það fékkst þó ekki áskrift í útboðinu fyrir öllum boðnum hlutum og því hafa seljendur ákveðið að falla frá útboðinu," segir ennfremur í tilkynningunni.

Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, tjáir sig um ákvörðunina og segir eftirfarandi:

Markaðsaðstæður hafa verið erfiðar síðustu misseri og það er ljóst að aðstæður hafa ekki orðið auðveldari. Efnahagsumhverfið er erfitt, markaðir þungir og vaxtastig hátt, en okkur þótti samt rétt í ljósi mikils áhuga á félaginu að athuga með skráningu á þessum tímapunkti. Niðurstaðan er hins vegar sú að hluthafar og stjórn hafa tekið þá ákvörðun að falla frá útboði og skráningu.