Framtakssjóðurinn Edda og Vari eignarhaldsfélag hafa undirritað kaupsamning um kaup Vara á 40% hlut Eddu framtakssjóðs í Securitas. Kaupsamningurinn er með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Í tilkynningu segir að eftir að viðskiptin fari í gegn verður Vari 100% eigandi Securitas. Vari verður þá í 95% eigu Stekks fjárfestingarfélags, sem hefur verið hluthafi í Securitas til 14 ára. Stekkur er í 100% eigu Kristins Aðalsteinssonar.

„Viðskiptin nú marka stór tímamót hjá Stekk og erum við ótrúlega spennt að halda áfram að uppbyggingu Securitas og efla þjónustu til okkar viðskiptavina. Ég hef setið í stjórn félagsins í 14 ár og er virkilega spennt fyrir komandi tímum,“ segir Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Vara eignarhaldsfélags og forstjóri Stekks fjárfestingarfélags.

Margit Robertet er framkvæmdastjóri Eddu og hefur verið fulltrúi sjóðsins í stjórn Securitas frá árinu 2016. Edda slhf. er 5 milljarða króna framtakssjóður í rekstri Kviku eignastýringar sem stofnaður var 2013.

„Eftir langt og farsælt samstarf með Stekk um fjárfestinguna í Securitas hefur Edda samþykkt tilboð Stekks um kaup á 40% hlut sjóðsins í félaginu. Það er með nokkrum trega sem við hverfum á braut enda Securitas gríðarlega flott félag með ýmis áhugaverð tækifæri til frekari vaxtar en yfir fjárfestingartímabilið hefur félagið tvöfaldað tekjur sínar og þrefaldað rekstrarhagnað fyrir afskriftir og skatta. Fyrir hönd Eddu þá vil ég þakka Guðlaugu Kristinsdóttur og Stekk fyrir gott samstarf og óska þeim alls hins besta á þessum tímamótum,“ segir Margit.