Nor­dic Secondary Fund hefur keypt al­menn bréf af nokkrum af elstu hlut­höfum DTE fyrir um 2,4 milljónir dala, sem sam­svarar rúm­lega 335 milljónum króna.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá NSF en sjóðurinn er eina fjár­festinga­fé­lagið á Norður­löndunum sem sér­hæfir sig í fjár­festingum á út­gefnum bréfum ó­skráðra fyrir­tækja, sem hafa lokið Series-A fjár­mögnun.

„Við erum mjög stolt af því að koma inn sem fjár­festar DTE, en við höfum reynt að komast yfir hlut í fyrir­tækinu í yfir tvö ár. Við sjáum gríðar­lega mögu­leika í DTE og við trúum því að við­skipta­módelið sé afar traust. Miðað við fjár­mögnunina sem þau luku við síðasta vor með fjár­festum á borð við Novelis, Metapla­net og EIC Fund ættu þau að vera orðin vel í stakk búin fyrir komandi tíma,“ segir Peter Sand­berg, stofnandi Nor­dic Secondary Fund.

„Það er ein­stak­lega á­nægju­legt að geta gert nokkrum af okkar elstu hlut­höfum kleift að hagnast á því að hafa stutt DTE alveg frá upp­hafi, á sama tíma og við bjóðum Nor­dic Secondary Fund vel­komin í hlut­hafa­hópinn,“ segir Karl Ágúst Matthías­son, fram­kvæmda­stjóri DTE.