Í síðustu viku setti Pósturinn upp hundraðasta póstboxið sitt við Krambúðina á Flúðum. Fyrstu póstboxin voru sett upp árið 2015 á höfuðborgarsvæðinu en síðan þá hefur þeim fjölgað um allt land.

Framan af voru þau aðeins átta talsins en árið 2020 urðu miklar breytingar í verslunarvenjum fólks sem kölluðu á nýja tegund póstþjónustu.

„Við finnum fyrir því að eftirspurnin eftir þessari þjónustu eykst og við viljum mæta þörfinni þar sem hún er mest. Nú þykir orðið sjálfsagt að hafa aðgang að póstboxi. Með 100 póstboxum hefur myndast þétt net afgreiðslustaða hringinn í kringum landið en við erum hvergi nærri hætt,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins.

Hún bætir við að markmiðið sé að bæta við tuttugu póstboxum til viðbótar á árinu víðs vegar um landið.

„Fólk talar um að það sé svo þægilegt að geta haft aðgang að póstboxinu hvenær sem er. Þá sé maður hvorki háður opnunartíma né því að vera heima við á ákveðnum tíma dags til að taka við sendingu,“ segir Þórhildur.