Kynningarfundur frumkvöðla- og nýsköpunarfélagsins Driftar EA fór fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær.

Stofnendur Driftar EA eru frændurnir Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson en á síðasta ári voru liðin 40 ár frá því gengið var frá kaupum á Samherja hf. og starfsemin hafin á Akureyri.

Félagið er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun með það að markmiði að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu. Tilgangurinn með stofnun félagsins er að gefa til baka til samfélagsins en um leið skapa tækifæri og byggja upp atvinnugreinar á Eyjafjarðarsvæðinu.

„Við frændur höfum lengi haft ómótaðar hugmyndir um að gera eitthvað nýtt fyrir komandi kynslóðir. Sýnin varð skarpari þegar gott verkfæri bauðst, frábært húsnæði sem héldi utan um starfsemi hugmyndarinnar,” segir Kristján Vilhelmsson.

Drift EA verður með aðsetur í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri en fjárfestingafélagið Kaldbakur ehf., sem er að hluta til í eigu sömu aðila, festi kaup á húsnæðinu í lok árs 2022. Unnið hefur verið að gagngerum endurbótum húsnæðisins, þannig að það þjóni sem best metnaðarfullri starfsemi Driftar EA.

„Drift EA er ætlað að blása til nýrrar sóknar og veita frumkvöðlum aðstöðu, faglega ráðgjöf og fjárstuðning, með það að markmiði að auka verðmætasköpun og ýta undir vöxt atvinnulífsins. Þetta tel ég geta orðið gott tækifæri fyrir ungt og kraftmikið fólk til að búa hér á svæðinu og starfa,” segir Þorsteinn Már Baldvinsson.