Nasdaq tók hlutabréf Ísfélagsins til viðskipta í dag en Ísfélagið er elsta starfandi hlutafélag landsins.
Ísfélag hf. var stofnað árið 1901 en félagið stundar aðallega veiðar og vinnslu á uppsjávarfiski, bolfiski og rækju auk þess sem dótturfélög þess stunda margþætta tengda starfsemi.
Hlutafjárútboð félagsins hófst í lok nóvember en rúmlega fimmföld eftirspurn var eftir hlutum í áskriftarbók A og rúmlega þreföld eftirspurn var í áskriftarbók B og var endanlegt útboðsgengi þar 155 kr. á hlut.

Yfir 1,2 milljarða króna velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaða í morgun og stendur gengið í 163 krónum.
Hægt er að sjá lista yfir 20 stærstu hluthafa Ísfélagsins að loknu útboði hér.
![](http://vb.overcastcdn.com/images/129050.width-1160.jpg)
![](http://vb.overcastcdn.com/images/129051.width-1160.jpg)
![](http://vb.overcastcdn.com/images/129049.width-1160.jpg)