Opnunarveisla Litla Barsins við Ránargötu 4a fór fram á föstudaginn fyrir helgi en barinn er staðsettur á fyrstu hæð hótelsins Local 101.

Opnunarveisla Litla Barsins við Ránargötu 4a fór fram á föstudaginn fyrir helgi en barinn er staðsettur á fyrstu hæð hótelsins Local 101.

Fjölmennt var á opnunarveislu barsins sem stóð frá 17:00 til 19:00
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)

Blaðamanni Viðskiptablaðsins var boðið að mæta á viðburðinn ásamt hópi fólks úr viðskipta- og stjórnmálalífinu.

Hulda Pétursdóttir, fjármálastjóri Santé Wines og vinkona, David Pitt, arkítekt og Guðrún Edda Þórhannesdóttir, kvikmyndaframleiðandi.
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)

Alma Bremond, meðeigandi barsins, segir að staðurinn eigi að endurspegla raunverulega íslenska sögu og menningu. Hún segir hönnun margra hótela vera þannig að gestir myndu ekki taka eftir því hvort sem þeir væru í Kaupmannahöfn eða New York.

Magnús Magnússon, markaðsstjóri Booking.com á íslandi, Símon Jóhannesson, aðgangsstjóri Booking.com á Íslandi, Marcin Cur hjá On Lemon og David Siklos, meðstofnandi Local 101.
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)

„Hugmyndin að þessum stað var að láta fólk líka eins og það væri í raun og veru á Íslandi. Þú labbar hérna inn og veist um leið að þú ert í Reykjavík. Við erum með íslenska tónlist, íslenska list og íslenska matseðla. Allt hér inni er íslenskt, nema að sjálfsögðu vínið, sem er ekki enn í boði.“

Sólveig Simha, kennari hjá Landakotsskóla og Patrick Le Ménes, sendiráðunautur franska sendiráðsins á Íslandi.
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)

Hótelið sjálft var fyrst byggt árið 1961 og er því meðal elsta hótela í Reykjavík. Alma, sem er hálf íslensk og hálf frönsk, vildi nýta sögulegt gildi lóðarinnar sem hafði verið fjársvelt í langan tíma og blása nýtt líf inn í hótelið.

Sölvi Snær Magnússon, eigandi Laundromat Café og Guðmundur Hallgrímsson, eigandi Lind fasteginasölu.
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)

Alma hefur sterk tengsl við miðbæ Reykjavíkur en foreldrar hennar, Þórunn Anspach og Oliver Brémond, ráku verslunina Kisan á Laugavegi 7 í fimm ár. Verslunin lokaði svo árið 2011 en Alma var mikið í kringum verslunina á yngri árum.

Alma Bremond tók vel á móti gestum kvöldsins með bæði mat og drykk.
© Helgi Steinar (Viðskiptablaðið)