Reitir fasteignafélag kynnti nýtt borgarhverfi við Kringluna á fundi Reykjavíkurborgar í Sambíóunum Kringlunni síðdegis í gær. Á sama tíma var opnuð sýning á þessum drögum að deiliskipulagstillögu fyrir almenning á jarðhæð í göngugötu Kringlunnar.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Um er að ræða drög að deiliskipulagstillögu 1. áfanga Kringlusvæðis, sem nær til lóðanna Kringlan 1-3 og Kringlan 5.

Meginmarkmið tillögunnar er að móta nýtt og þétt borgarumhverfi en í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir allt að 450 íbúðum. Byggðamynstur mun einkennast af fjölbreyttum hlutföllum og útliti en gert er ráð fyrir að flest íbúðahúsanna verði þriggja til sex hæða byggingar. Einnig verður boðið upp á útsýnisíbúðir sem telja allt að 14 hæðir.

Skjólgóð og sólrík götu- og torgrými tengjast aðaltorgi svæðisins sem verður á nýrri gönguleið úr Hamrahlíð í Kringluna.

„Við sjáum fyrir okkur líflegt borgarhverfi með áherslu á skjólsæl græn almenningssvæði sem styrkir nærsamfélagið með miðjusettu torgi sem umlukið er veitinga- og kaffihúsum auk menningartengdri starfsemi. Tillagan gerir ráð fyrir að breyta gömlu prentsmiðju Morgunblaðsins í menningarmiðstöð sem felur í sér að hluti sögunnar verður partur af hinu nýja borgarhverfi,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags.