Play gerir ekki lengur ráð fyrir að skila rekstrarhagnaði (EBIT) yfir allt árið 2023 eins og félagið hafði áður spáð. Þetta kemur fram í tilkynningu flugfélagsins um flutningatölur ágústmánaðar. Play segir þó ljóst að um mjög umtalsverðan viðsnúning í rekstri verði að ræða frá fyrra ári.

Play gerir ekki lengur ráð fyrir að skila rekstrarhagnaði (EBIT) yfir allt árið 2023 eins og félagið hafði áður spáð. Þetta kemur fram í tilkynningu flugfélagsins um flutningatölur ágústmánaðar. Play segir þó ljóst að um mjög umtalsverðan viðsnúning í rekstri verði að ræða frá fyrra ári.

Play segir að rekstrarafkoman það sem af er ári verið til samræmis við áætlanir stjórnenda sem gerðu ráð fyrir að EBIT-afkoma félagsins yrði lítillega jákvæð fyrir árið í heild sinni.

„Rekstrarafkoma (EBIT) það sem af er þessum ársfjórðungi hefur verið mjög góð og umtalsverður rekstrarbati hefur átt sér stað, hvort sem horft er til sama tímabils í fyrra eða síðasta ársfjórðungs. Frá lokum síðasta ársfjórðungs (Q2) hefur flugvélaeldsneyti, sem er langstærsti einstaki kostnaðarliður félagsins, hækkað um fjórðung.“

Play segir eina af lykilforsendum fyrir afkomuspá ársins vera stöðugt eldsneytisverð. Umrædd hækkun „ásamt öðrum almennum kostnaðarhækkunum vegna verðbólgu í heiminum“ hafi neikvæð áhrif á afkomu félagsins seinni hluta ársins.

„Play er í góðri stöðu nú þegar hausta tekur og veturinn nálgast. Sætanýting er umtalsvert hærri sem og tekjur á hvern farþega frá fyrra ári og eftirspurnin á lykilmörkuðum er sterk. Félagið er hins vegar með augun á hugsanlegum áhrifum verðbólgu og hækkandi framfærslukostnaðar á eftirspurnina yfir veturinn. Það þýðir að erfiðara mun reynast að spá fyrir um horfur á fjórða ársfjórðungi og lengra fram í veturinn, líkt og önnur flugfélög víða um veröld hafa nýverið verið að greina frá.“

Í viðræðum um að stækka flotann

Flugfélagið segist áfram sjá vaxtartækifæri og vinnur að því að stækka flota sinn á næstu árum. Félagið hefur þegar skrifað undir viljayfirlýsingu sem tryggir félaginu tvær nýjar Airbus A320neo farþegaþotur fyrir sumarið 2025.

„Frekari viðræður standa yfir um stækkun flotans fyrir 2024 og 2025 og verður greint frá niðurstöðu þeirra þegar þeim lýkur.“

89% sætanýting í ágúst

Play flutti 184.926 farþega í ágúst mánuði samanborið við 108.622 farþega á sama tíma í fyrra. Sætanýtingin í ágúst 2023 var 88,9%, samanborið við 86,9% í ágúst árið 2022. Stundvísi Play í liðnum ágúst var 90,1%.

Af þeim farþegum sem flugu með Play í síðasta mánuði voru 22,1% að ferðast frá Íslandi, 35% til Íslands og 42,9% voru tengifarþegar (VIA).

„Margir áfangastaðir í leiðakerfi Play voru með yfir 90% sætanýtingu í ágústmánuði en þar af voru Prag, Toronto og Barcelona með yfir 95% sætanýtingu.“

„Ágúst gekk mjög vel í flugrekstri Play þar sem sætanýting var 89% og stundvísi upp á 90% sem er með því besta sem finnst í fluggeiranum. Við nálgumst nú sumarlok og það er þegar ljóst að við erum mjög stolt af frammistöðunni það sem af er ári. Við sjáum enn tækifæri á markaði og höfum þess vegna hafið skipulagningu á frekari vexti á komandi árum. Við höfum staðfest tvær nýjar A320neo farþegaþotur sem bætast við flotann árið 2025 og erum í viðræðum um frekari stækkun í nálægri framtíð,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

„Það er jákvætt að við sjáum enn hærri tekjur á farþega samanborið við fyrra ár og betri sætanýtingu nú þegar veturinn nálgast og eftirspurnin er fremur kröftug á flestum lykilmörkuðum. Við leggjum áfram áherslu á að halda kostnaðargrunninum eins lágum og unnt er og að vera sveigjanleg í leiðakerfinu til aðlagast síbreytilegu umhverfi.“