Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Schiphol-flugvallar í Amsterdam í sumar. Flugfélagið hefur á sama tíma ákveðið að aflýsa áætlun sinni til Árósa í Danmörku.

Fyrsta flug Play til Amsterdam verður 5. júní en flogið verður allt að fimm sinnum í viku út október. Áætlunarferðir Play verða á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum.

„Frá stofnun Play hefur það verið forgangsmál að fá lendingarleyfi á Schiphol-flugvelli en hann hefur verið þéttsetinn undanfarin ár og því erfitt að komast þar að,“ segir í fréttatilkynningu

„Schiphol-flugvöllur er ein helsta samgöngumiðstöð í Evrópu og verður því virkilega mikilvægur fyrir tengiflugsleiðakerfi Play á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Það á ekki bara við um að koma farþegum á milli heimsálfanna tveggja heldur er Schiphol gífurlega mikilvægur flugvöllur fyrir alla vöruflutninga.“

Flugfélagið segist hafa lagt ríka áherslu á að auka umsvif sín í vöruflutningum og telur að áætlunarferðir til Amsterdam muni hafa jákvæð áhrif á þá þróun.

Play hélt áður úti áætlunarflugi til Schiphol-flugvallar í fjóra mánuði frá desember árið 2021 til mars árið 2022.

Segja miður að missa Árósa úr sumaráætluninni

Play segir að þar sem félaginu hafi boðist lendingarleyfi á Schiphol-flugvelli í sumar muni ‏það á sama tíma aflýsa áætlun sinni til Árósa í Danmörku.

„Þetta er miður þar sem sala á miðum til Árósa hafði gengið vel en vegna mikilvægis Schiphol-flugvallar fyrir áætlunarkerfi Play var þessi ákvörðun tekin.“

Flugfélagið tekur fram að farþegar sem áttu bókað flug með Play til og frá Árósum fái bókun sína endurgreidda að fullu.

„Schiphol-flugvöllur er þriðji stærsti flugvöllur Evrópu og því ákaflega mikilvæg viðbót við leiðakerfi Play. Það er ekki hlaupið að því að fá lendingarleyfi á flugvellinum í dag. Þess vegna stukkum við til þegar okkur bauðst lendingarleyfi þar í sumar. Við vonumst að sjálfsögðu til að geta boðið upp á áætlunarferðir til Amsterdam allt árið og er þessi ákvörðun liður í því að koma okkur í þá stöðu. Markmiðið okkar í ár er að auka hlut hliðartekna verulega í okkar rekstri og með því að taka stefnuna til Amsterdam erum við að setja okkur í frábæra stöðu til að gera það með vöruflutningum,” segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Allir áfangastaðir eru nú komnir í sölu fyrir sumarið en hátt í fjörutíu áfangastaðir verða í leiðakerfi Play í ár.