Ársverðbólga í Þýskalandi hefur ekki verið lægri síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Verðbólgan mældist 4,5% í septembermánuði á ársgrundvelli sem er lækkun úr 6,1% í ágúst.
Tvö og hálft ár er síðan verðbólgan mældist svona lág í Þýskalandi en það var sem fyrr segir í febrúar 2022 en þá var hún 4,3%.
Matvöruverð hefur þó hækkað um 7,5% á ársgrundvelli í Þýskalandi á meðan orkuverð hækkaði einungis um 1%.

Neikvæður hagvöxtur og samdráttur
Kjarnaverðbólga sem undanskilur sveiflukennda sveiflukennda vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, féll einnig milli mánaða úr 5,5% í 4,6%.
Greiningarfyrirtæki í Þýskalandi spá neikvæðum hagvexti í ár en ef áætlanir ganga eftir mun efnahagur Þýskalands dragast saman um 0,6% milli ára.
Verulega hefur hægt á efnahagsumsvifum í landinu síðustu mánuði og eru allar líkur á að það muni halda áfram fram að árslokum.