Skiptafundur á þrotabúi Niceair fer fram á fimmtudaginn en kröfuhafar félagsins hafa fengið endanlega kröfuskrá fyrir fundinn. Samkvæmt henni er félagið eignalaust en það koma ekki fram ábendingar um eignir í búinu í síðasta lagi á fundinum, má vænta þess að skiptum verði lokið.
Samkvæmt endanlegri kröfuskrá er samtala lýstra krafna samtals að fjárhæð 184.158.558 kr. sem sundurliðast svo að forgangskröfur eru að fjárhæð 38.541.149 kr., almennar kröfur 143.975.450 kr. og eftirstæðar kröfur að fjárhæð 1.641.959 kr.
Samtals voru forgangskröfur að fjárhæð 32.250.266 kr. samþykktar við skiptin.
Vegna eignaleysis þrotabúsins hefur skiptastjóri ekki tekið afstöðu til almennra eða eftirstæðra krafna, líkt og kveðið er á um í gjaldskiptalögum.
„Á allan máta óviðráðanlegar ástæður“
Niceair hóf áætlunarflug í júní 2022 og var með ferðir til Danmerkur, Bretlands og Spánar. Félagið neyddist hins vegar til að taka ferðir til Standsted í London úr sölu strax um veturinn sama ár vegna vandkvæða sem sneru að flugrekstrarleyfi erlenda samstarfsaðila félagsins, HiFly.
Í byrjun apríl árið 2023 ákvað Niceair að aflýsa öllu flugi og gera hlé á allri starfsemi sinni eftir að félagið varð fyrir miklum skakkaföllum vegna vanefnda HiFly.
Flugfélagið sagði upp öllu starfsfólki í lok apríl og sótti um gjaldþrotaskipti í maí sama ár.
Stjórn Niceair segir að óeðlilegir viðskiptahættir af hálfu HiFly hafi orðið þess valdandi að félagið hafði ekki lengur flugvél til umráða og ekki reyndist unnt að fá aðra vél á þeim tímapunkti.
„Þar sem engin flug voru lengur á vegum félagins og félagið var tekjulaust, voru forsendur fyrir nýlokinni fjármögnunarlotu brostnar og ekki reyndist mögulegt að innkalla hlutafjárloforð,“ sagði í tilkynningu stjórnarinnar.
„Þetta voru á allan máta óviðráðanlegar ástæður. Þessi málalok eru sérlega sorgleg þar sem góðar forsendur voru til staðar og reynslan hafði sýnt að rekstrargrundvöllur væri fyrir beinu millilandaflugi um Akureyri.“