Hallur Andrés Baldursson, stjórnarformaður ENNEMM, er launahæstur á lista yfir laun auglýsingafólks. Launatekjur hans á síðasta ári námu 4,3 milljónum króna á mánuði.

Í öðru sæti listans er Sveinn Líndal Jóhannsson sem starfar á sömu auglýsingastofu. Hann var með 1,9 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Bragi Valdimar Skúlason, einn eigenda Brandenburgar, með 1,9 milljónir króna á mánuði.

24 á listanum eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.

Tekjur tíu hæstu á mánuði:

  1. Hallur Andrés Baldursson, stjform. ENNEMM - 4,3 milljónir kr.
  2. Sveinn Líndal Jóhannsson, tengill ENNEMM - 1,9 milljónir kr.
  3. Bragi Valdimar Skúlason, Brandenburg - 1,9 milljónir kr.
  4. Katrín Margrét Guðjónsdóttir, frkvstj. SSNV & form. ÍMARK - 1,8 milljónir kr.
  5. Hjörvar Harðarson, hönnunarstj. ENNEMM - 1,7 milljónir kr.
  6. Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, tengill - 1,7 milljónir kr.
  7. Jón Árnason, hugmyndastj. ENNEMM - 1,6 milljónir kr.
  8. Kristján Schram, Instrument - 1,5 milljónir kr.
  9. Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi Aton.JL - 1,4 milljónir kr.
  10. Ragnar Már Vilhjálmsson, Manhattan marketing - 1,4 milljónir kr.

Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 2.749 kr. á mánuði